Húsbíll fauk út af

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hvassviðri feykir húsbílum …
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hvassviðri feykir húsbílum af vegum landsins. Myndin er úr safni. mbl

Húsbíll fauk út af veginum í Kollafirði um klukkan 10 í morgun. Talið er að bíllinn hafi farið eina veltu. Lögregla og sjúkralið fóru á vettvang.

Að sögn lögreglu hlaut ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, minniháttar áverka. Þess ber að geta að talsvert hvasst var á vettvangi og mun svo enn vera.

Varað við hvassvirði á Kjalarnesi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert