Alvarleg líkamsárás í Hamraborg

Frá Hamraborg í Kópavogi.
Frá Hamraborg í Kópavogi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í gærmorgun, grunaður um alvarlega líkamsárás á heimili í Hamraborg í Kópavogi.

Lögreglan var kölluð á vettvang og handtók manninn.  

Krafist var gæsluvarðhalds yfir honum en Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu lögreglunnar í dag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vildi ekki greina frá ástandi fórnarlambsins og segir málið enn vera í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert