Velti bíl sínum ölvaður

Frá Reykjanesbraut. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar …
Frá Reykjanesbraut. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. mbl.is/Golli

Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í gærmorgun. Þegar lögreglu og sjúkralið kom á vettvang var maðurinn kominn út úr bifreiðinni en reyndist ekki slasaður. Þegar lögreglumenn ræddu við hann lagði af honum áfengisþef og viðurkenndi hann áfengisneyslu.

Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Bifreiðin var fjarlægð með dráttarbifreið þar sem hún hafði skemmst mikið við veltuna. Voru skráningarnúmerin tekin af henni vegna þess. Þá urðu skemmdir á vegriði við Reykjanesbraut vegna atviksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert