Sauðburður hafinn í Laugardalnum

Ærin Bílda með lömbin sín tvö
Ærin Bílda með lömbin sín tvö Af Facebook síðu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins

Sauðburður er hafinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum en ærin Bílda kom tveimur lömbum í heiminn í gær. Um er að ræða biksvarta gimbur og gráan hrút sem fæddust seint í gærkvöldi. Greint er frá þessu á Facebook síðu garðsins þar sem gestir garðsins eru jafnframt beðnir um að sýna ungviðinu og öðrum íbúum garðsins fyllstu tillitssemi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert