Ekki virða allir lokun út í Gróttu

Grótta hefur verið lokuð á þessum árstíma mörg undanfarin ár …
Grótta hefur verið lokuð á þessum árstíma mörg undanfarin ár vegna fuglavarpsins en staðurinn hefur verið friðaður síðan 1974. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grótta hefur verið lokuð fyrir gestum og gangandi síðan 1. maí og verður áfram lokað fyrir umferð til 15. júlí vegna fuglavarps.

Ekki taka allir mark á þessum lokunum og hefur Seltjarnarnesbær verið í vandræðum vegna ágangs ferðamanna og fólks með gæludýr. Nú vinnur bærinn að því að setja upp fleiri skilti sem munu verða á íslensku, ensku og þýsku og mun stærri en þau sem fyrir eru.

Skiltin voru ekki enn komin upp þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar þar að garði um helgina, en þá var þar töluvert af fólki þrátt fyrir bannið og augljós skilti þess efnis.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka