Gullleit á Norðurlandi

Fyrirtækið hyggst leita eftir og rannsaka gull í Hörgárdal, Öxnadal …
Fyrirtækið hyggst leita eftir og rannsaka gull í Hörgárdal, Öxnadal og á Tröllaskaga.

Íslenskt fyrirtæki, Iceland Resources, hefur óskað eftir leyfi til leitar og rannsóknar á málmum í Hörgárdal, Öxnadal og í nágrenni við Tröllaskaga.

Orkustofnun hefur fyrir hönd fyrirtækisins óskað eftir umsögn byggðaráðs Skagafjarðar vegna málsins, en einungis verður leitað að gulli.

Leyfið á Norðurlandi er hluti af stærra verkefni, en áður hefur fyrirtækið óskað umsagna vegna leitar í Vopnafirði, í Hveragerði og á Reykjanesi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert