Hafnarfjarðarbær gegn mansali

Frá Hafnarfirði.
Frá Hafnarfirði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Samþykkt var samhljóða í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í dag að veita hættunni á mansali sérstaka athygli og að farið yrði yfir alla ferla hjá bænum í því skyni að vernda þá sem væru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Verða allir innkaupaferlar og útboðsskilmálar yfirfarnir í þessu ljósi og enn fremur tryggt að starfsfólk fái fræðslu um hvernig bera skuli kennsl á mansal.

„Sú fræðsla hefur þegar farið fram tvisvar sinnum. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðallögfræðingur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, var með fræðslu fyrir stóran hóp af starfsfólki á dögunum og hún og Snorri Birgisson rannsóknarlögreglumaður voru með kynningu fyrir bæjarstjórn fyrir bæjarstjórnarfundinn,“ segir enn fremur í fréttatilkynningu.

Samþykkt bæjarstjórnar í heild:

„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að bæjarfélagið skuli veita hættunni á mansali sérstaka athygli. Farið verður yfir alla ferla hjá bænum með það að markmiði að vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Allir innkaupaferlar og útboðsskilmálar verða yfirfarnir með tilliti til þess. Þá mun Hafnarfjarðarbær tryggja að starfsfólk og eftirlitsaðilar á vegum bæjarins fái fræðslu um hvernig bera megi kennsl á mansal.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert