Þyrlan komin af slysstað

Frá aðgerðunum í dag.
Frá aðgerðunum í dag. ljósmynd/Landhelgisgæslan

Flak þyrlu Ólafs Ólafs­son­ar var í dag flutt af slysstað, en þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, aðstoðaði Rannsóknarnefnd samgönguslysa við að flytja hana niður að Nesjavallavirkjun. Þaðan var þyrlan flutt til Reykjavíkur með flutningabíl.

Gekk aðgerðin mjög vel í alla staði samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

Þyrl­an hrapaði á Hengils­svæðinu á sunnudagskvöld með þeim af­leiðing­um að all­ir fimm sem í þyrlunni voru voru flutt­ir á Land­spít­al­ann og hafa þrír þeirra sætt frek­ari rann­sókn­um á spít­al­an­um í dag. Rannsókn á tildrögum slyssins er í fullum gangi hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Ólafur Ólafsson átti þyrluna.
Ólafur Ólafsson átti þyrluna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert