22 þúsund vinna í ferðaþjónustu

Ferðamönnum hingað til lands hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum.
Ferðamönnum hingað til lands hefur fjölgað gríðarlega á undanförnum árum. mbl.is/Ómar Óskarsson

22 þúsund manns vinna að jafnaði í ferðaþjónustu á Íslandi á þessu ári. Það er ríflega 10% starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði. Líklegt þykir að um 40% nýrra starfsmanna í ferðaþjónustu á árunum 2016 og 2017 komi erlendis frá, en þeir eru nú sex þúsund.

Þetta er meðal helstu niðurstaðna sem koma fram í könnun Stjórnstöðvar ferðamála um mannaflaþörf og þörf fyrir fræðslu/hæfni í ferðaþjónustu á Íslandi. Könnunin var framkvæmd í apríl síðastliðnum og var send á stjórnendur íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja í öllum landshlutum. 

Samkvæmt niðurstöðunum vilja fyrirtækin helst auka hæfni í tengslum við þjónustulund og gestrisni, jákvætt viðmót, sjálfstæð vinnubrögð og samskiptahæfni. Mest vantar af fólki í ræstingar/þrif, gestamóttöku, eldhús og veitingasali, leiðsögumennsku, sölu- og afgreiðslustörf og faglærða matreiðslu. Erfiðast er að manna í ræstingar/þrif og stöður faglærðra matreiðslumanna, að því er segir í fréttatilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu.

Þá kalla fyrirtækin eftir fræðslu sem starfsmenn geti ástundað sem mest á vinnustað og vilja sjá heildstætt þrepaskipt starfsnám í ferðaþjónustu.

Niðurstöður könnunarinnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert