Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á eldsupptökum í iðnaðarhúsnæði í Vesturvör í Kópavogi aðfaranótt þriðjudags hefur leitt í ljós að allar líkur eru á að um sjálfsíkveikju hafi verið að ræða.
Tilkynning um eldinn barst lögreglu skömmu eftir klukkan þrjú um nóttina, en mikið tjón varð í brunanum, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Eins og greint var frá á mbl.is kom mikill eldur upp í húsnæði lyftaraþjónustunnar Hraðbergs við Vesturvör í Kópavogi. Tilkynning barst um eld í húsnæðinu kl. 3:08 aðfaranótt þriðjudags. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var sent á staðinn og aukamannskapur síðan kallaður út. Allt í allt voru um fjörutíu slökkviliðsmenn kallaðir út vegna eldsins.
Einn maður var í húsnæði Hraðbergs þegar eldurinn kom upp en komst út ómeiddur.