Samið um lögfræðiráðgjöf við innflytjendur

Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, og Eygló Harðardóttir, félags- og …
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, og Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, við undirritunina. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, undirrituðu í gær endurnýjaðan samning um að Mannréttindaskrifstofan annist lögfræðiráðgjöf við innflytjendur þeim að kostnaðarlausu.

Mannréttindaskrifstofan hefur sinnt slíkri þjónustu undanfarin ár á grundvelli samnings við velferðarráðuneytið og er samningurinn endurnýjaður í ljósi góðrar reynslu af verkefninu, að því er segir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Mannréttindaskrifstofa Íslands fær fimm milljónir króna til verkefnisins samkvæmt samningnum og er fénu fyrst og fremst ætlað að standa straum af kostnaði vegna lögfræðiráðgjafar og túlkaþjónustu.

Fengin reynsla sýnir að veruleg þörf er fyrir þessa þjónustu. Á síðasta ári veitti Mannréttindaskrifstofan 528 viðtöl á grundvelli samningsins, ýmist á skrifstofu sinni, í gegum síma eða Skype.

Mest er óskað eftir ráðgjöf vegna umsókna um dvalar- og atvinnuleyfi, fjölskylduréttar, einkum vegna skilnaðar-, forsjár- og umgengnismála, en ýmis önnur mál koma einnig við sögu, s.s. ráðgjöf og ýmis önnur mál sem varða félagsleg réttindi innflytjenda.

Nánar á vef ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert