Harður árekstur við Hveragerði

mbl.is/Hjörtur

Tvær bifreiðar lentu í hörðum árekstri á þjóðvegi eitt við Hveragerði í kvöld. Fimm voru samtals í bifreiðunum og voru tveir fluttir á sjúkrahús með minni háttar meiðsl til læknisskoðunar.

Bifreiðarnar eru illa farnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Loka þurfti veginum um tíma vegna slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert