Ók á bifreið í ölæði

mbl.is/Hjörtur

Þrír ölvaðir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt að því er fram kemur í dagbók lögreglu.

Einn þeirra var látinn laus að sýnatöku lokinni en annar var jafnframt réttindalaus og vistaður hjá lögreglu „vegna rannsóknar málsins ásamt fleiru“.

Sá þriðji var vistaður hjá lögreglu vegna rannsóknar málsins en sá er grunaður um að hafa ekið á aðra bifreið og skemmt hana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert