Dettifossvegur er áfram lokaður vegna hláku og vatnavaxta sem skapað hafa hættuástand á útsýnissvæðinu við Dettifoss samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en veginum var lokað tímabundið í gær þar til aðstæður löguðust.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er búist við áframhaldandi vatnavöxtum á Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. Leysingar verða einnig um helgina á norðan- og austanverðu landinu.
„Undanfarið hefur rennsli í ám aukist vegna leysinga og verður áframhald þar næstu daga, þar sem spáð er talsverðri rigningu um landið vestanvert og á sunnanverðum Vestfjörðum, samhliða hlýnandi veðri á norðan og austanverðu landinu. Vegfarendur eru hvattir til að gæta varúðar og sýna aðgát við vatnsföll. Vöð á ám geta verið varhugaverð,“ segir á vef Veðurstofunnar.