Þingvallavegur lokaður eftir mótorhjólaslys

Þingvallaveginum er lokað eftir alvarlegt mótorhjólaslys.
Þingvallaveginum er lokað eftir alvarlegt mótorhjólaslys. Ljósmynd/ Sigrún Eggertsdóttir

Alvarlegt mótorhjólaslys varð á Þingvallavegi við Leirvogsá á Mosfellsheiði nú síðdegis og er vegurinn nú lokaður.  

Maðurinn var einn á ferð og virðist hafa misst vald á hjólinu og lent utan í vegriði að sögn lögreglu. Búið er að flytja hann á Landspítala og ástand hans er talið alvarlegt.

Á facebooksíðu lögreglunnar er ökumönnum bent á að hægt sé að komast um Kjósarskarðsveg.

Þeir ökumenn sem eru að koma frá Reykjavík geta ekið Vesturlandsveg, inn í Hvalfjörð og þaðan inn Kjósarskarðsveg. Þeir sem hins vegar eru á leið frá Þingvöllum geta farið Þingvallaveg að Kjósarskarðsvegi og síðan Hvalfjarðarveg.

Enn er unnið að rannsókn á vettvangi og ekki er vitað hvenær Þingvallavegur opnast að nýju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert