Aflaverðmæti dróst saman um 25%

Aflaverðmæti í febrúar nam tæpum 12,2 milljörðum króna.
Aflaverðmæti í febrúar nam tæpum 12,2 milljörðum króna. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 12,2 milljörðum í febrúar sem er samdráttur um rúm 25% samanborið við febrúar 2015 þegar verðmætið nam 16,3 milljörðum.

Samdrátt í aflaverðmæti má rekja til minni uppsjávarafla en verðmæti uppsjávartegunda nam rúmum 1,4 milljarði í febrúar til samanburðar við tæpa 6 milljarða í febrúar 2015, samkvæmt tilkynningu frá Hagstofunni.

Verðmæti botnfisks nam rúmum 10,2 milljörðum í febrúar og jókst um 4,2% samanborið við febrúar 2015. Virði flatfiskafla nam 500 milljónum í febrúar sem er tæplega 23% aukning á milli ára.

Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá mars 2015 til febrúar 2016 jókst um 2,3% miðað við sama tímabil ári fyrr. Á því tímabili jókst aflaverðmæti botnsfisks um 10,4%, flatfisks um 46,9% en verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 25,6%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert