Hlutdeild á Íslandi hæst í Evrópu

Stjórnvöldum ber að taka saman á tveggja ára fresti skýrslu …
Stjórnvöldum ber að taka saman á tveggja ára fresti skýrslu um endurnýjanlega orkugjafa. mbl.is/Ómar Óskarsson

Heildarhlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi árið 2014 var 71% og er Ísland það Evrópuland þar sem hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa er hæst.

Noregur fylgir fast á eftir með 69% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í framvinduskýrslu um endurnýjanlega orkugjafa á Íslandi sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Orkustofnun hafa tekið saman. 

Stjórnvöldum ber að taka saman á tveggja ára fresti skýrslu um endurnýjanlega orkugjafa. Tölurnar í skýrslunni ná yfir árin 2013 og 2014 en vegna breyttrar aðferðafræði eru einnig birtar leiðréttar tölur fyrir árin 2010 til 2012, samkvæmt vefsíðu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert