Ilmur brast í söng í borgarstjórn

Ilm­ur Kristjáns­dótt­ir, vara­borg­ar­full­trúi Bjartr­ar framtíðar, brast í söng á fyrsta sameiginlega fundi borgarstjórnar og ofbeldisvarnarnefndar Reykjavíkur í dag. Söng hún íslenska útgáfu af laginu Imagine eftir John Lennon, en S. Björn Blön­dal, odd­viti Bjartr­ar framtíðar, spilaði undir á gítar.

Fundurinn var samtal að fyrirmynd sameiginlegra funda borgarstjórnar með öldungaráði, fjölmenningarráði og ungmennaráðum sem eiga sér lengsta sögu. Á fundinum fjölluðu fulltrúar í ofbeldisvarnarnefnd um þau skref sem þeim finnst mikilvægast að taka í baráttunni gegn ofbeldi, en formaður ofbeldisvarnarnefndar, fulltrúi lögreglunnar, fulltrúi Stígamóta, fulltrúi Kvennaathvarfsins og fulltrúi Landlæknis höfðu framsögu.

Eftir það fluttu Ilmur og Björn atriði sitt, en þar söng hún:

Mér er sagt að ég sé með óra,

en ég er ekki ein um það.

Já komdu með, höldum hópinn.

Gerum heiminn að griðarstað.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ilmur brestur í söng í borgarstjórn, en í febrúar fetaði hún í fót­spor Whitney Hou­st­on og flutti brot úr lag­inu The Grea­test Love of All.

Hátíðarfundur kvenna í borgarstjórn, sem haldinn var í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna, samþykkti að stofna ofbeldisvarnarnefnd í mars á síðasta ári. Ofbeldisvarnarnefnd er vettvangur samráðs borgarfulltrúa og sérfræðinga á sviði ofbeldisvarna og er virkur þátttakandi í allri stefnumörkun málaflokksins. Nefndinni er ætlað að takast á við ofbeldi í sinni víðustu mynd – öllu ofbeldi alls staðar.

Stór hluti kvenna og barna verða fyrir ofbeldi. Talið er að ein af hverjum fimm stelpum verði fyrir ofbeldi, einn af hverjum 10 strákum og þriðjungur kvenna.

Ráðið á að vinna tillögur að aðgerðum borgarinnar til að styrkja forvarnarstarf vegna kynbundins ofbeldis og mæta þörfum þolenda. Enn fremur þarf að efla aðstoð og ráðgjöf fyrir gerendur, auk fræðslu um mörk og virðingu.

Ilmur brast í söng í borgarstjórn í dag.
Ilmur brast í söng í borgarstjórn í dag. Skjáskot
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert