Malbikað á Kringlumýrarbraut í dag

Unnið verður við malbikun á Kringlumýrarbraut í dag.
Unnið verður við malbikun á Kringlumýrarbraut í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Malbikað verður á Kringlumýrarbraut í dag frá strætóstoppistöð við Kringluna að Háaleitisbraut. Unnið verður á akrein lengst til hægri.

Einnig verður afrein frá Miklubraut að Grensásvegi malbikuð, samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni.

Vinnan hófst klukkan 9 í morgun og stendur yfir fram eftir degi.

Vegagerðin greinir einnig frá því að vegslóðar á hálendinu séu afar viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Í verndarskyni er akstursbann á mörgum hálendisvegum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert