Reisa 620 íbúðir í Smáranum

Ingvi Jónasson frá Smárabyggð ehf., Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, …
Ingvi Jónasson frá Smárabyggð ehf., Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, og Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins fasteignafélags. Ljósmynd/Kópavogsbær

Kópavogsbær, Smárabyggð ehf. og Reginn fasteignafélag hafa undirritað samkomulag um uppbyggingu í Smáranum, nýju hverfi sunnan Smáralindar.

Markmið samkomulagsins er að styrkja svæðið sem öflugt, vistvænt og eftirsóknarvert íbúðar- og verslunarsvæði í miðju höfuðborgarsvæðisins og að nýta núverandi innviði bæjarfélagsins betur, að því er kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.

Fyrirhugað er að reisa 620 íbúðir á svæðinu í fimmtán húsum. Gert hafði verið ráð fyrri 500 íbúðum á svæðinu en unnið er að breytingu á aðalskipulagi til að fjölga íbúðum  án þess að byggingarmagn aukist. Er það í samræmi við tillögur húsnæðisnefndar Kópavogs sem kynntar voru síðastliðið haust þar sem bent var á þörf á minni og ódýrari íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.

Við skipulag svæðisins verður litið til yfirbragðs og hæðar byggðar, vistvænna lausna, opinna svæða, aðgengis og tenginga við aðliggjandi svæði, gæða sem og fjölbreytts íbúðarforms.

Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um næstu áramót og verður uppbyggingu á svæðinu lokið innan átta ára samkvæmt samkomulaginu, að því er kemur fram í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert