Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur ökumönnum bifhjóla við Hringbraut í gærkvöldi. Annar þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum ævilangt en hinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hjól hans var með röng skráningarmerki og var einnig ótryggt.
Um þrjúleytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn við Túngötu. Hann er grunaður um skemmdir á bifreið og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu.
Um hálftíuleytið í gærkvöldi voru afskipti höfð af manni í Hellisgerði í Hafnarfirði vegna vörslu fíkniefna.