Verður heimilt að leigja út í 90 daga

Þúsund­ir gist­i­rýma eru í boði í heimagistingu.
Þúsund­ir gist­i­rýma eru í boði í heimagistingu. mbl.is/Sigurður Bogi

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, til breytinga á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Fjörutíu þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpinu, tveir sátu hjá og 21 þingmaður var fjarstaddur.

Er breytingunum ætlað að uppfæra löggjöfina til samræmis við breyttan veruleika og viðurkenna með því tilvist deilihagkerfisins ásamt því að stuðla að verulegri einföldun regluverks í ferðaþjónustu.

Við atkvæðagreiðsluna á þingi í kvöld fagnaði Ragnheiður Elín því að frumvarpið hafi verið samþykkt og þakkaði hún jafnframt atvinnuveganefnd fyrir öflugt starf.

„Ég tel að þarna séum við stíga mörg stór skref. Við erum að taka stórt skref í því að lifa í nýjum veruleika þar sem deilihagkerfið er mikilvægur þáttur, einfalda relguverk í kringum það og gera fólki auðveldara um vik að starfa og vera í slíku umhverfi og einnig erum við almennt að einfalda þetta fyrirkomulag,“ sagði hún.

Samkvæmt frumvarpinu, sem nú hefur verið samþykkt, verður einstaklingum heimilt að leigja út heimili sitt og aðra fasteign sem hann hefur til persónulegra nota í allt að níutíu daga á ári án þess að sækja um rekstrarleyfi, líkt og krafist er samkvæmt núgildandi lögum.

Einu kröfurnar sem verða settar fyrir útleigu eru þær að viðkomandi skrái sig hjá sýslumanni, greiði skráningargjald og að fasteignin uppfylli brunakröfur. Samhliða mun umhverfis- og auðlindaráðherra breyta reglugerð um hollustuhætti þannig að skráðum heimagistingaraðilum dugi að tilkynna um útleigu og sæta eftirliti hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar, í stað þess að sækja um starfsleyfi.

Þá verða tekin upp númer sem skráðum heimagistingaraðilum sem og öðrum rekstrarleyfishöfum verður skylt að nota í allri markaðssetningu, þar á meðal á vefsíðum og auglýsingum. Þetta mun gera eftirlit með gisti- og veitingaiðnaðinum auðveldara auk þess að styrkja neytendavernd þeirra sem kaupa gistiþjónustu hér á landi.

Eitt af markmiðum frumvarpsins er einföldun regluverks en jafnframt er því ætlað að draga úr svartri atvinnustarfsemi. Eftirlit með heimagistingu mun verða á hendi sýslumanna sem hafa heimild til að beita nýjum úrræðum svo sem afskráningu, synjun um endurskráningu og eins að leggja stjórnvaldssektir á þá einstaklinga sem stunda útleigu án skráningar.

Meðal annarra breytinga í frumvarpinu sem miða að einföldun regluverks má nefna að kveðið er á um að starfsemi veitingastaða án áfengisveitinga verði einungis háð leyfi frá viðkomandi sveitarfélagi. Þannig mun leyfisskyldan falla niður og fyrir vikið verður starfsumhverfið mun einfaldara.

Fréttatilkynning ráðuneytisins frá því fyrr í vetur

Ferill málsins á þingi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert