Leikskólinn Askja útskrifaði í gær þau börn sem yfirgefa nú leikskólann og halda á vit ævintýranna í grunnskólunum. Voru börnin glöð og spennt að takast á við nýjar áskoranir, líkt og sjá má í myndasyrpu sem fylgir fréttinni.
Dóra Margrét Bjarnadóttir, skólastjóri Öskju, segir í samtali við Morgunblaðið að dagurinn hafi verið dásamlegur, veðrið hafi leikið við börn og foreldra og kennarar kvatt útskriftarnemendur með sorg í hjarta.
„Við gerum svolítið úr þessum áfanga því að þetta er stórt skref,“ segir Dóra. Hvert barn fékk meðal annars stein og birkihríslu til umsagnar og veglegs faðmlags frá kennurum í kveðjugjöf. „Steinninn fær hvert og eitt barn sem það skreytir með fallegum hugsunum,“ segir Dóra, ánægð með útskriftina.