Minnkandi úrkoma í nótt

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn gera ráð fyrir minnkandi austlægri átt og minnkandi úrkomu í nótt. Vindur verður 3–10 metrar á sekúndu með morgninum.

Dálítil rigning verður suðaustan- og austanlands en skýjað með köflum og stöku skúrir annars staðar. Einkum síðdegis.

Hiti verður frá 8 stigum austast á landinu upp í 18 stig í innsveitum norðan og vestan til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert