Tilkynning var að berast slökkviliði höfuðborgarsvæðisins um eld í togara í slippnum við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlegt tilfelli er að ræða en allar stöðvar hafa verið sendar á staðinn. Bæði slökkviliðsbílar og sjúkrabílar eru á staðnum.
Uppfært 17:10: Búið er að slökkva eldinn og unnið að kælingu og frágangi á staðnum samkvæmt upplýsingum frá slökkivliðinu.