Uppselt er í flug Icelandair til Nice til á sunnudaginn, en það fór í sölu kl. 14:30 í dag. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, seldist upp í flugið á örfáum mínútum, sennilega um sjö.
Flogið verður á Boeing 757-200-vél félagsins, en hún tekur 183 farþega.
Frétt mbl.is: Icelandair flýgur til Nice vegna leiks Íslands og Englands