Brotamenn í fíkniefnasamkvæmi

mbl.is/Eggert

Kvörtun barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um klukkan sex í morgun vegna hávaða frá íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar reyndist fíkniefnasamkvæmi vera í gangi með þekktum brotamönnum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Fjórir voru handteknir vegna málsins. Tveir veittu mikla mótspyrnu en voru yfirbugaðir. Lagt var hald á meint fíkniefni og nokkurt magn af alls kyns vopnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert