Náið samráð um tengsl við Breta

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra á ráðherrafundinum í Sviss í morgun.
Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra á ráðherrafundinum í Sviss í morgun. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

EFTA-ríkin munu eiga með sér náið samráð til að viðhalda nánum efnahags- og viðskiptatengslum við Bretland, samkvæmt ákvörðun ráðherrafundar EFTA sem haldinn er í Bern í Sviss. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra situr fundinn fyrir hönd Íslands.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Á fundinum var í dag rætt um þá stöðu sem upp er komin í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi, þar sem meirihluti kjósenda var fylgjandi úrsögn úr Evrópusambandinu.

Í tilkynningunni kemur fram að EFTA-ríkin munu leita lausna samhliða viðræðum Breta við Evrópusambandið, eftir því sem frekast er unnt, til að koma í veg fyrir lagalegt tómarúm þegar útgöngusamningur Breta við ESB tekur gildi. Að svo stöddu telja þau hins vegar ótímabært að staðhæfa hvaða leiðir skili EFTA-ríkjunum bestum árangri.

Á fundinum ræddi Lilja um mikilvægi góðs viðskiptasambands Íslands við Bretland og fagnaði áhuga EFTA-ríkjanna á að ráðfæra sig við hvert annað til að tryggja sem bestan árangur.

Ísland í forystu EFTA og EES

Ísland tekur við forystu í EFTA þann 1. júlí. Samband aðildarríkjanna við Bretland verður efst á baugi í formennskutíð Íslands en að auki bíður það samtakanna að halda áfram og ljúka fríverslunarviðræðum sem standa yfir við lönd utan EFTA. Þá lýsti utanríkisráðherra því yfir að setning jafnréttisstefnu fyrir EFTA yrði meðal forgangsverkefna í formennskutíð Íslands og væri undirbúningur þess þegar hafinn. Rætt var um þá fyrirætlan Íslands á fundinum í dag og ákveðið að hefja undirbúning að gerð slíkrar stefnu.

Samhliða forystu í EFTA gegnir Ísland forystu í EES frá 1. júlí, sem skapar góð tækifæri til samræmingar í áherslum, segir í tilkynningunni.

Ráðherrafundinum lýkur í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert