Örtröð í vínbúðinni

Löng biðröð hefur myndast fyrir utan vínbúðina.
Löng biðröð hefur myndast fyrir utan vínbúðina. mbl.is/Stefán Einar

Mikil örtröð er í vínbúð ÁTVR í Austurstræti í miðbæ Reykjavíkur og hefur löng biðröð myndast fyrir utan búðina.

Þar rétt hjá, á Arnarhóli, verður leikur Íslands og Englands í sextán liða úrslitum EM í knattspyrnu sýndur í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19 og streymir nú fólk í miðbæinn. Er búist við margmenni á Arnarhóli í kvöld.

Mikið fjölmenni er þegar mætt á Arnarhól.
Mikið fjölmenni er þegar mætt á Arnarhól. mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert