Brjáluð fagnaðarlæti brutust út á Arnarhóli þegar flautað var til leiksloka í leik Íslands og Englands fyrir skemmstu. Yfir tíu þúsund manns slepptu sér af fögnuði og sungu stuðningssöngva, landsliðinu til heiðurs.
Lokatölur urðu 2:1 og heldur íslenska landsliðið áfram að skrifa nýja kafla í sögu sína.
Ísland mætir gestgjöfum Frakklands í París í átta liða úrslitunum á sunnudag.
Blaðamaður mbl.is var á Arnarhóli og fangaði stemmninguna, eins og sjá má á myndskeiðum hér og hér.