Opnað fyrir bókanir til Parísar

Búast má við mikilli eftirspurn eftir flugferðum til Frakklands fyrir …
Búast má við mikilli eftirspurn eftir flugferðum til Frakklands fyrir leik Íslendinga og heimamanna á sunnudag. mbl.is/Golli

Ferðaskrifstofan Heimsferðir stefnir að því að hægt verði að bóka flug til Parísar fyrir leik Íslendinga og Frakka á EM nú kl. 9:30. Miðasala á leikinn hefst svo í hádeginu.

Leikurinn í 8-liða úrslitunum gegn Frökkum fer fram á Stade de France kl. 19 að íslenskum tíma á sunnudaginn. Heimsferðir munu bjóða upp á kvöldflug til Parísar laugardaginn 2. júlí og heim aftur til Íslands þriðjudaginn 5. júlí.

Í tilkynningu frá Heimsferðum kemur fram að stefnt sé að því að hægt verði að bóka flugið á vefsíðu fyrirtækisins nú kl. 9:30.

Ljóst er að mikil spurn verður eftir bæði miðum á leikinn og flugi til Frakklands. Flugfélögin hafa þegar lýst áhuga á að gera sem flestum kleift að komast til Parísar til að styðja strákana okkar.

Frétt mbl.is: Reyna að koma sem flestum til Parísar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert