20 gjaldhæstu einstaklingarnir

Meðal hæstu greiðenda í ár voru Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi …
Meðal hæstu greiðenda í ár voru Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums, Þórir Garðarsson, stjórn­ar­formaður hóp­ferðabíla­fyr­ir­tæk­is­ins Grayl­ine og Árni Harðarson , aðstoðarforstjóri Alvogen.

20 gjaldhæstu einstaklingarnir samkvæmt álagningaskrá ríkisskattstjóra sem birt var í dag greiddu 2,5 milljarða í opinber gjöld. Það er um 125 milljónir að meðaltali. Efstur á listanum var Árni Harðarson, stjórnarmaður og aðstoðarforstjóri Alvogen en hann greiddi 265 milljónir í opinber gjöld.

Næst hæstu gjöldin greiðir Christopher M. Perrin, en hann er stjórnarformaður ALMC, sem áður var Straumur-Burðarás. Fyrirtækið greiddi í lok síðasta árs þáverandi og fyrrverandi starfsmönnum félagsins háar bónusgreiðslur, en samkvæmt umfjöllun um málið í febrúar voru þær um 3,3 milljarðar króna til 20-30 starfsmanna.

Þriðji hæsti gjaldandinn er Jakob Ásmundsson, en hann er fyrrverandi forstjóri Straums og fékk einnig bónusgreiðslur frá ALMC á síðasta ári.

Þórir Garðarsson og Sigurdór Sigurðsson eru í fjórða og fimmta sæti listans og greiða 160-163 milljónir í gjöld hvor. Þeir eiga báðir hlut í hópferðabílafyrirtækinu Grayline. Akur fjár­fest­ing­ar keypti í fyrra tæplega helmingshlut í félaginu af þeim tveimur, en þeir eru enn meirihlutaeigendur.

Listann í heild sinni má sjá hér að neðan:

  • Árni Harðarson - 265.319.825
  • Christopher M Perrin - 200.033.697
  • Jakob Már Ásmundsson - 193.218.736
  • Þórir Garðarsson - 163.175.914
  • Sigurdór Sigurðsson - 160.403.826
  • Óttar Pálsson - 142.730.845  
  • Valur Ragnarsson - 133.059.910
  • Sigurður Reynir Harðarson - 131.512.950
  • Kristján V Vilhelmsson - 129.060.207
  • Andrew Sylvain Bernhardt - 112.810.485
  • Jakob Óskar Sigurðsson - 101.488.387
  • Þórlaug Guðmundsdóttir - 100.992.418
  • Þorvaldur Ingvarsson - 93.116.177
  • Egill Jónsson - 86.244.009
  • Kári Stefánsson - 84.516.529
  • Guðbjörg Edda Eggertsdóttir - 83.537.457
  • Þuríður Ottesen - 81.246.007
  • Benedikt Sveinsson - 80.440.300
  • Ingibjörg Lind Karlsdóttir - 80.290.404
  • Grímur Karl Sæmundsen - 80.089.692
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert