Guðni heimsótti forsætisráðherra

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson nýkjörinn forseti …
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson nýkjörinn forseti Íslands. Mynd/Facebook

Nýkjörinn forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson heimsótti í dag Sigurð Inga Jóhannsson forsætisráðherra í forsætisráðuneytið. Sigurður Ingi greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni í dag.

Sigurður Ingi segir þá hafa átt stutt og gott spjall áður en forsætisráðherrann hélt norður á landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal.

Þeir Sigurður og Guðni munu svo hittast aftur í París á sunnudaginn, eftir því sem Sigurður Ingi segir frá, en þar munu þeir báðir hvetja íslenska landsliðið til dáða gegn liði Frakka á Stade de France.

„Strákarnir okkar hafa svo sannarlega sýnt það á mótinu að engin hindrun er svo stór að ekki sé hægt að yfirstíga hana,“ skrifar Sigurður Ingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert