Íslenska ríkið var í gær sýknað af kröfu fyrrverandi lögreglumanns á Austurlandi sem krafðist 10 milljóna í bætur vegna aðgerða sem lögreglan hafi gripið til gegn honum þegar rannsakað var hvort hann hefði gerst brotlegur í starfi og verið með óásættanlega og ósæmilega háttsemi í starfi þegar hann aflífaði hreindýr sem hafði flækst í girðingu og tekið svo sjálfur hryggjavöðva úr dýrinu til eigin nota.
Atvikið átti sér stað í desember 2010 og var maðurinn þá aðalvarðstjóri hjá lögreglunni. Fékk hann tilkynningu um málið og þótt hann væri á frívakt ákvað hann að sinna málinu sjálfur. Sótti hann lögreglubifreið og skotvopn á lögreglustöðina og fór svo þangað sem dýrið var.
Þar sem nokkuð dróst að maðurinn kæmi til baka á lögreglustöðina athuguðu samstarfsmenn hans ferilvöktun bifreiðarinnar og sáu að hann hafði komið við í eigin sumarhúsi á leiðinni. Lögreglumaðurinn skyldi dýrið aftur á móti eftir á vettvangi.
Samstarfsmaður hans ákvað að fara og skoða vettvang betur og komst að því að að hryggvöðvar beggja vegna hryggs höfðu verið skornir úr dýrinu. Þá var dýrið ekki talið veikburða að sjá eftir að hafa fest sig í girðingunni. Maðurinn neitaði því að hann hefði tekið hryggvöðvana, en við húsleit fundust þeir í frystikistu hans. Var málið þremur dögum seinna sent til ríkissaksóknara sem ákvað að ákæra manninn fyrir brot í starfi.
Maðurinn var seinna áminntur af sýslumanninum á Eskifirði vegna vinnubragða sinna. „Hafi stefnandi misnotað stöðu sína, sýnt af sér ósæmilega hegðun sem ekki samrýmdist lögreglustarfinu og væri til þess fallin að valda álitshnekki og varpa rýrð á starf hans og þar með á störf annarra lögreglumanna á lögregluvarðstofunni,“ er sagt í frásögn dómsins af málinu.
Maðurinn var í september árið 2011 sýknaður í héraðsdómi af ákæru saksóknara og var krafa hans núna því um bætur vegna aðgerða lögreglu sem hefðu leitt til tilhæfulausrar ákæru. Þá vildi hann láta ógilda áminninguna sem hann fékk.
Dómurinn núna taldi manninn aftur á móti hafa brotið alvarlega af sér og því ekki um að ræða að ógilda áminninguna. Þá væri heldur ekki orðið við kröfum mannsins um bætur, en málskostnaður var á móti felldur niður.
Maðurinn fór strax eftir atvikið í veikindaleyfi og árið 2012 baðst hann lausnar frá starfi.