Mál mannsins enn óupplýst

Maðurinn var fluttur á Landspítalann þar sem hlúð var að …
Maðurinn var fluttur á Landspítalann þar sem hlúð var að honum. Mynd úr safni. Ófeigur Lýðsson

Mál karlmanns á miðjum aldri sem fannst meðvitundarlaus fyrir utan heimili sitt í Brekkuhverfinu í Kópavogi um tíuleytið síðastliðið laugardagskvöld er enn óupplýst. Maðurinn var með mikla áverka þegar hann fannst en ekki liggur fyrir hver veitti honum þá. 

Maðurinn var fluttur á Landspítalann þar sem hlúð var að honum.

Eng­in vitni hafa gefið sig fram og hef­ur maður­inn ekki getað greint frá at­vik­um. Þá hef­ur lög­regla ekki vís­bend­ing­ar um málið, sem er áfram til rann­sókn­ar hjá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu.

Fréttir mbl.is: 

Maðurinn lá fyrir utan heimili sitt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert