Breytingar í sendiráðum Íslands

Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg.
Utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Flest starfsfólk utanríkisþjónustunnar er flutningsskylt og má á vef utanríkisráðuneytisins finna eftirtaldar breytingar á starfsstöðvum sendiherra og aðalræðismanna í samræmi við þessa reglu, en breytingarnar taka gildi 1. ágúst næstkomandi.

Albert Jónsson, sendiherra í Moskvu, kemur til starfa í ráðuneytinu og mun Berglind Ásgeirsdóttir, sendiherra í París, taka við af honum í Rússlandi. Kristján Andri Stefánsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, verður sendiherra í París.

Auðunn Atlason, sendiherra í Vín, kemur til starfa í ráðuneytinu og verður Gréta Gunnarsdóttir sendiherra í hans stað. Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra í Berlín, kemur til starfa í ráðuneytinu og tekur Martin Eyjólfsson, fastafulltrúi í Genf, við sendiherrastöðunni í Þýskalandi. Högni S. Kristjánsson, skrifstofustjóri í ráðuneytinu, tekur við starfi fastafulltrúa í Genf.

Þá lét Hjálmar W. Hannesson sendiherra af störfum sem aðalræðismaður í Winnipeg 1. maí sl. og lét jafnframt af störfum í utanríkisþjónustunni. Þórður Bjarni Guðjónsson, aðalræðismaður í Þórshöfn, tók við af Hjálmari W. 15. maí sl. og hóf Pétur G. Thorsteinsson störf sem aðalræðismaður í Þórshöfn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert