Björgvin Karl í áttunda sæti

Björgvin Karl á leikunum.
Björgvin Karl á leikunum. Ljósmynd/Berglind Sigmunds

Björgvin Karl Guðmundsson hafnaði í áttunda sæti í einstaklingsflokki karla á heimsleikunum í crossfit sem lauk í gærkvöldi. Björgvin hlaut alls 735 stig. Sigurvegari einstaklingsflokks karla var Bandaríkjamaðurinn Mathew Fraser með 1096 stig, 197 stigum á undan Ben Smith sem hafnaði í öðru sæti.

Þá varð Íslendingaliðið Cross­fit XY í 34. sæti.

Eins og kom fram í gærkvöldi bar Katrín Tanja Davíðsdóttir sigur úr býtum í einstaklingsflokki kvenna, annað árið í röð. Katrín Tanja hlaut alls 984 stig, Ragn­heiður Sara Sigmundsdóttir hafnaði í þriðja sæti með  sam­tals 919 stig. Þá hlaut Annie Mist Þórisdóttir 682 stig og varð í 13. sæti en Þuríður Erla Helga­dótt­ir 563 stig og hafnaði í 19. sæti.

Stigagjöfina í heild má sjá hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert