Þýska sendiráðið vottar samúð sína

Fólki var meinaður aðgangur að aðallestarstöð München eftir árásina.
Fólki var meinaður aðgangur að aðallestarstöð München eftir árásina. AFP

Staðgengill sendiherra Þýskalands á Íslandi, Diane Röhrig, vonast til að atburðir eins og þeir sem hafa gerst í Þýskalandi að undanförnu, þar sem þrjár árásir hafa verið gerðar á skömmum tíma, muni ekki endurtaka sig.

„Það eru eðlileg viðbrögð að verða fyrir áfalli út af því sem hefur gerst,“ segir Röhrig. „Við vonum að sjálfsögðu að þetta gerist ekki aftur.“

27 ára gam­all hæl­is­leit­andi frá Sýr­landi sprengdi sig upp fyr­ir utan vín­b­ar í bæn­um Ans­bach í gær. Á föstudaginn voru níu skotn­ir til bana af ung­um Þjóðverja af ír­önsk­um ætt­um í München og fyrir viku síðan særði 17 ára af­gansk­ur hæl­is­leit­andi fimm lestarfarþega með exi í nágrenni Stuttgart.

Frétt mbl.is: Tengi hælisleitendur ekki við árásirnar

Sendiráð Þýskalands er staðsett að Laufásvegi í Reykjavík.
Sendiráð Þýskalands er staðsett að Laufásvegi í Reykjavík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sigmar Gabriel, varakanslari Þýskalands, sagðist í gær vera reiðubúinn til að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að takmarka aðgengi að banvænum skotvopnum. Röhrig segir að engin spurning sé um að slíkt þurfi að gera og telur að það myndi hafa sitt að segja til að fyrirbyggja árásir sem þessar.

Frétt mbl.is: Vilja herða byssulöggjöfina

„Í hinum vestræna heimi er aldrei hægt að koma 100% í veg fyrir árásir sem þessar en það þarf að alltaf að endurskoða reglulega hvernig hægt er að bregðast við þeim og reyna að koma í veg fyrir að þær endurtaki sig,“ segir Rhörigh, sem fylgdist vel með fregnum af árásunum á netinu, þar á meðal á samfélagsmiðlum. 

Lögreglan á verði skammt frá staðnum þar sem árásin í …
Lögreglan á verði skammt frá staðnum þar sem árásin í München átti sér stað. AFP

Þýska sendiráðið vottaði í morgun aðstandendum fórnarlamba árásanna samúð sína á Facebook-síðu sinni. Einnig var þeim þakkað sem færðu því hluttekningarorð og samkennd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert