Varðskipið Týr var sent til að aðstoða ástralska skútu sem orðið hafði eldsneytislaus vestur af Reykjanesi nú í kvöld.
Týr var kominn að skútunni um ellefuleytið og var verið að ljúka við að dæla eldsneyti á tanka skútunnar er mbl.is heyrði í Landhelgisgæslunni um hálftólfleytið.
Ekkert amaði að skipverjum skútunnar, sem gerðu ráð fyrir að halda för sinni áfram þegar að þessu loknu.