Má ekki nota eigin posa

Valitor segist velja þá leið að leigja út posana af …
Valitor segist velja þá leið að leigja út posana af öryggisástæðum.

„Ég er einfaldlega mjög ósáttur við þetta háa leiguverð og kynnti mér því hvað svona posi kostar í útlöndum. Niðurstaðan er að ég gæti fengið eins posa og pin pad, og ég er að leigja af Valitor, fyrir 60 þúsund krónur.“

Þetta segir Guðmundur Ómarsson, eigandi Eldhafs ehf. á Akureyri, sem greiðir Valitor 90.828 krónur á ári fyrir leigu á posa. Að sögn Guðmundar er ársleigan hjá Valitor 30 þúsund krónum hærri en stofnkostnaður fyrir tækin.

Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segist hann hafa haft samband við Valitor, sagst hafa áhuga á að kaupa eigin posa og nota hann en hafi ekki fengið leyfi til þess.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert