Sækir veikan skipverja á Vestfjarðamið

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leið á Vestfjarðamið að sækja veikan skipverja. Það var á níunda tímanum í kvöld að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um þyrlu vegna veiks skipverja um borð í skipi sem statt var á Vestfjarðamiðum.

TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út og siglir skipið nú til móts við þyrluna. Er áætlað að þyrlan verði komin að skipinu rúmlega ellefu í kvöld og mun hún flytja skipverjann á sjúkrahús.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert