Segja niðurstöðuna fullkomlega lögmæta

Í fréttatilkynningu er bent á að niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á …
Í fréttatilkynningu er bent á að niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins 6. júlí hafi verið fullkomlega lögmæt og aðeins eigi eftir að varpa hlutkesti um það hver tekur sæti sem fimmti stjórnarmaður félagsins í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga. mbl.is/Jón Sigurðarson

Brim hf., minnihlutaeigandi í Vinnslustöðinni, fer fram á að fulltrúar meirihlutans bíði niðurstöðu yfirstandandi rannsóknar Hlutafélagaskrár á gjörðum þeirra á aðalfundi 6. júlí sl. áður en boðað verði til hluthafafundar. Hlutafélagaskrá er úrskurðaraðili í svona málum samkvæmt hlutafjárlögum. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá því að umræður og deil­ur hafi skap­ast um stjórn­ar­kjör á aðal­fundi Vinnslu­stöðvar­inn­ar hf. fyrr í mánuðinum.

Seil ehf., stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðvar­inn­ar, óskaði eft­ir því á sunnudaginn að boðað yrði til hlut­hafa­fund­ar til að kjósa nýja stjórn.

Fyrri frétt mbl.is: Hóta lögbanni og málsókn

„Fulltrúar meirihlutans stigu fram í fjölmiðlum um helgina og lýstu því yfir að farið yrði fram á að stjórn, sem ekki lengur hefur umboð til að starfa fyrir hönd félagsins, boði til nýs hluthafafundar þar sem enn og aftur á að kjósa nýja stjórn yfir félagið. Fulltrúar minnihluta hluthafa mótmæla þessu harðlega,“ segir í fréttatilkynningu frá Brimi hf.

Er bent á að niðurstaða fyrra stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins 6. júlí hafi verið fullkomlega lögmæt og aðeins eigi eftir að varpa hlutkesti um það hver tekur sæti sem fimmti stjórnarmaður félagsins í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga.

„Það er mikilvægt að forðast valdníðslu og virðingarleysi gagnvart lýðræðislegum kosningum. Heppilegast væri að fulltrúar meirihlutans með Harald Gíslason í broddi fylkingar sættu sig við niðurstöðu hins fyrra stjórnarkjörs, þrátt fyrir að niðurstaðan hafi ekki verið þeim þóknanleg, svo réttkjörin stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. geti hafið störf hið fyrsta með hagsmuni félagsins, starfsmanna og annarra sem því tengjast að leiðarljósi. Slík niðurstaða er sanngjörn fyrir alla hluthafa, ekki bara meirihlutann,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert