Sækist eftir 1. sæti

Þorsteinn Sæmundsson.
Þorsteinn Sæmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hyggst sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í næstu kosningum til Alþingis.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Þorsteini.

„Ákvörðun mín er tekin vegna hvatningar sem ég hef fengið frá framsóknarmönnum í Reykjavík á framboði mínu þar. Einnig hefur brotthvarf tveggja reyndra þingmanna úr kjördæminu áhrif á ákvörðun mína en brýnt er að fylla það skarð sem þeir láta eftir. Ég mun senda kjörstjórn flokksins í Reykjavík tilkynningu um framboð mitt innan nokkurra daga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert