Dekkjakurlið burt af skólalóðum í Hafnarfirði

Páll Halldórsson frá Metatron og Haraldur bæjarstjóri skrifa hér undir …
Páll Halldórsson frá Metatron og Haraldur bæjarstjóri skrifa hér undir samning um verkið. Á borðinu má annars vegar sjá nýja grasið og hins vegar nýja gúmmífylliefnið.

Hafist hefur verið handa við að fjarlægja dekkjakurl af fótboltavöllum við grunnskóla í Hafnarfirði og stefnt er að því að allt dekkjakurl verði farið af skólalóðum áður en skólar hefjast í haust. 

Bæjarráð Hafnarfjarðar ákvað síðasta vor að skipta út dekkjakurli á fótboltavöllum við fjóra af grunnskólum bæjarins og setja nýtt gervigras án allra fylliefna við þrjá skóla. Verkið var boðið út og bauð fyrirtækið Metatron, sem er með aðalstarfsstöð sína í Hafnarfirði, lægst í verkið að því er segir í fréttatilkynningu frá Hafnafjarðarbæ. 

Í dag skrifuðu Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Páll Halldórsson, framkvæmdastjóri Metatrons, undir samning um verkefnið og hófst sama dag vinna við að fjarlægja gamla dekkjakurlið af fótboltavellinum við Hraunvallaskóla. Stefnt er að því að allt dekkjakurl verði farið af skólalóðum áður en skólar hefjast í haust. 

Vinna við þá þrjá velli; Hvaleyrarskóla, Setbergsskóla og Öldutúnsskóla, þar sem skipt verður alveg um grasmottu hefst í lok ágúst og á að ljúka í síðasta lagi í október. Þessir vellir verða án gúmmíuppfylliefna en sett verður gúmmímotta undir gervigrasið sem á að tryggja betri endingu og stöðugleika samkvæmt tilkynningunni.

Bæjaryfirvöld eru sögð afar ánægð með hve hratt hefur tekist að vinna þetta verkefni og fagna því að losna við dekkjakurlið af völlunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert