Ferðafólk gæti varúðar

Foss í Bláfjallakvísl á syðri Fjallabaksleið austan Mýrdalsjökuls.
Foss í Bláfjallakvísl á syðri Fjallabaksleið austan Mýrdalsjökuls. mbl.is/Rax

Ferðafólk á göngu um Laugaveginn er hvatt til að gæta varúðar við Bláfjallakvísl vegna mikils rennslis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Tilkynningar hafa borist Veðurstofunni frá ferðafólki við Bláfjallakvísl, norðan Mýrdalsjökuls um að vatnshæð og rennsli þar hafi aukist mikið, og nái fólki upp að mitti. Vegna hlýs veðurs um helgina er líklegt að halda muni áfram að hækka í ánni og er fólk beðið um að gæta varúðar við vöð yfir ánna, sem er hluti af gönguleiðinni um Laugaveg.

Ástæða aukins rennslis í Bláfjallakvísl er talin vera hlýtt veður og breyting á árfarvegum norðan Mýrdalsjökuls.

Enginn mælir er í Bláfjallakvísl en Veðurstofan heldur góðum samskiptum við fólk á svæðinu til að fylgjast með framvindu málanna.

Þá vekur Veðurstofan vekja athygli á að aukning í rennsli Bláfjallakvíslar er ótengt jarðskjálftavirkninni í Mýrdalsjökli síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert