Á leið til Eyja eftir sólarhrings vöku

Mikil stemmning var í Landeyjahöfn klukkan 10 í morgun þegar Þjóðhátíðarfarar gerðu sig tilbúna til brottfarar. Viðmælendur mbl.is voru sammála um að það væri alls ekki of snemmt fyrir einn kaldan, „það er nú einu sinni Þjóðhátíð“.

Gera má ráð fyrir því að um 15 þúsund manns leggi leið sína til Vestmannaeyja um helgina, og taki þátt í þessari stærstu helgi Eyjamanna. Mbl.is fylgdi ferðalöngunum úr hlaði.

Meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á hátíðinni í ár eru Agent Fresco, Úlfur Úlfur, Quarashi og Retro Stefson. Auk þess munu Jón Jónsson, Emmsjé Gauti, Friðrik Dór, Ragga Gísla, Helgi Björns, Stop Wait Go, FM95BLÖ, Rigg, Júníus Meyvant, Sverrir Bergmann, Sylvía og Sindri Freyr stíga á stokk.

Dagskrá Þjóðhátíðar má nálgast hér.

Gott veður í eynni um helgina

Veður­spá­in fyr­ir Þjóðhátíð í Vest­manna­eyj­um lít­ur mjög vel út fyr­ir dag­inn í dag og á morg­un; létt­skýjað eða skýjað og hiti 11 til 13 stig.

Á sunnu­dag má hins veg­ar bú­ast við skúraklökk­um sunn­an- og vest­an­lands, en þeir munu lík­lega halda sig meira inni á land­inu en í Eyj­um. Það gæti því gert skúra­veður en eins er mögu­leiki á að Vest­manna­eyj­ar sleppi við úr­komu þá.

Á mánu­dag má bú­ast við enn meiri raka og skúr­um um allt land, þar á meðal í Eyj­um. Meira þegar líður á dag­inn, svo það er um að gera fyr­ir Þjóðhátíðargesti að pakka tjöld­un­um snemma, sé þess kost­ur og verði þurrt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert