Skort hefur lögreglumenn hjá embætti lögreglunnar á Norðurlandi eystra síðan embættið var sett á laggirnar 2015. Þetta segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri.
„Á sama tíma og íbúafjöldi hefur tvöfaldast hefur fjöldi lögreglumanna staðið í stað eða jafnvel minnkað,“ segir Daníel í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri embættisins, segir að fjórir séu að jafnaði á vakt lögreglunnar á Akureyri. „En við höfum talað um að í raun þyrftu þeir að vera sjö talsins.“