Mál piltsins sem fannst nakinn á götu í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt þriðjudags er á viðkvæmu stigi, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan vill ekki gefa upp hvort grunsemdir séu uppi um að piltinum hafi verið misþyrmt, að því er kom fram á Rúv.is. Fatnaður piltsins fannst skammt frá honum. Grunur leikur á að honum hafi verið byrluð ólyfjan.
Frétt mbl.is: Fannst nakinn úti á götu
Enginn hefur verið yfirheyrður í tengslum við málið og er lögreglan að kanna eftirlitsmyndavélar á svæðinu.
Pilturinn, sem er 17 ára bandarískur ferðamaður, hafði verið á kaffihúsi en um nóttina sá leigubílstjóri hann nakinn úti á götu. Var hann fluttur á Landspítalann.