Miklar umferðartafir við Selfoss

Bíll er við bíl alla leið frá Kögunarhóli og inn …
Bíll er við bíl alla leið frá Kögunarhóli og inn á Selfoss þessa stundina. mbl.is/ Sigurður Bogi Sævarsson

Miklar umferðartafir eru á leiðinni milli Hveragerðis og Selfoss þessa stundina og má sjá bíl við bíl alla leið frá Kögunarhóli og inn á Selfoss. Að sögn lögreglunnar á Selfossi skrifast tafirnar þó hvorki á umferðaróhapp né framkvæmdir, heldur er einfaldlega svo mikil umferð fólks á leið í gegnum bæinn vegna verslunarmannahelgarinnar.

„Svona er umferðin bara orðin,“ sagði lögreglumaður á vakt sem mbl.is ræddi við. „Selfoss er algjör flöskuháls þegar svona er.“

Umferðin hefur gengið slysalaust fyrir sig það sem af er degi að sögn lögreglunnar. „Þetta gengur vel, en hægt.“ Einungis brot ferðalanganna er á leið í Landeyjahöfn til að ná Herjólfi út í Eyjar samkvæmt lögreglunni. „Besta spáin um verslunarmannahelgina er fyrir Suðurlandið og nú þegar eru öll tjaldstæði í uppsveitum Árnessýslu einfaldlega orðin smekkfull.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert