Íslendingar neikvæðari gagnvart ferðamönnum

Erlendir ferðamenn að spóka sig í Reykjavík.
Erlendir ferðamenn að spóka sig í Reykjavík. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

MMR kannaði nýlega viðhorf Íslendinga til erlendra ferðamanna á Íslandi. Þeim hefur fækkað nokkuð sem kváðust jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum frá því í júlí í fyrra. Þannig sögðust 67,7% vera jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi nú, borið saman við 80,0% í júlí 2015. 

Spurt var: Almennt séð, hversu jákvæð(ur) eða neikvæð(ur) ert þú gagnavart erlendum ferðamönnum á Íslandi?
Svarmöguleikar voru: Mjög jákvæð(ur), frekar jákvæð(ur), hvorki jákvæð(ur) né neikvæð(ur), frekar neikvæð(ur), mjög neikvæð(ur) og veit ekki/vil ekki svara.
Samtals tóku 99,9% afstöðu til spurningarinnar.

Munur á viðhorfi eftir hópum

Nokkur munur var á viðhorfi til erlendra ferðamanna eftir búsetu, tekjum og kyni. Þeir sem voru búsettir á höfuðborgarsvæðinu voru líklegri til þess að vera jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en þeir sem voru búsettir á landsbyggðinni. Þannig sögðust 71,7% þeirra sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu vera jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi, borið saman við 60,3% þeirra sem búsettir voru á landsbyggðinni.

Þeir sem höfðu hærri heimilistekjur voru frekar jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en þeir sem höfðu lægri heimilistekjur. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu tekjuhæsta hópnum (milljón eða meira á mánuði í heimilistekjur) sögðust 82,8% vera jákvæð gagnvart erlendum ferðamönnum, borið saman við 54,7% þeirra sem tilheyrðu tekjulægsta hópnum (undir 250 þúsund á mánuði í heimilistekjur).

Þeir sem studdu Pírata voru síður jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en stuðningsfólk annarra flokka. Þannig sögðust 64,0% þeirra sem studdu Pírata vera jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi. Þeir sem sögðust styðja Samfylkinguna voru hins vegar jákvæðari gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi en stuðningsfólk annarra flokka. Þannig sögðust 85,3% þeirra sem studdu Samfylkinguna vera jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum á Íslandi.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 906 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 15. til 22. júlí 2016

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert